Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
16.11.2023 | 06:13
Fasismi og útlendingahatur í ríkisstofnunum og kærunefnd útlendingamála
Ákvörðun Kærunefndar Útlendingamála um Venúsela er byggð á lygum, blekkingum og þvælu og hefur alltaf verið aldrei neitt annað. Þingmaður fór í vetur í pontu á Alþingi og laug þar að þjóðinni, alþingi og öllum sem heyra vildu um stöðuna í Venúsela og fullyrti að til Íslands væru flugvélar að koma til Íslands fullar af fólki frá Venúsela. Íslenskir fjölmiðlar í sínu gagnleysi og meðvirkni gerðu ekkert með lygar þessa þingmanns, annað en að endurtaka þær og láta síðan gott heita. Í öðrum ríkjum hefði viðkomandi þurft að segja af sér og síðan settur í lögreglurannsókn í besta tilfelli. Ábyrgð Alþingis er engin og virðing Alþingis er engin.
Núna er búið að vísa 180 manns frá Venúsela í hendurnar á brjáluðum einræðisherra og enginn veit hvað verður um þetta fólk. Þar sem það er ekkert réttaríki í Venúsela, efnahagurinn er rúst og spillingin er algjör. Þessi málsmeðferð er mannréttindabrot og verður aldrei neitt annað.
180 Venesúelabúar fluttir úr landi í gær | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
29.9.2023 | 12:41
Lygaþvæla og drullumall öfga-hægri þingsmanns Birgir Þórarinssonar
Birgir Þórarinsson er þingmaður sjálfstæðisflokksins. Birgir Þórarinsson er lygari og dreifir útlendingahræðslu eins og hans kemst upp með. Þó svo að fyrir löngu sé búið að afsanna þessa lygaþvælu sem frá honum kemur fyrir löngu síðan. Það er ekkert nýtt að glæpasamtök noti sér neyð fólks og ljúgi að því. Á sama tíma lýgur Birgir Þórarinsson um stöðu mála, þó svo að hann viti full vel að staðan er ekki eins slæm og hann lætur af, í þessum málaflokki.
Það er nauðsynlegt að koma þessum fasistum frá völdum á Íslandi og helst inn í fangelsin á Íslandi, þar sem þetta fólk er ekki hæft til þess að búa í samfélagi fólks. Þetta eru ekkert nema nasistar og annað slæmt fólk sem gerir aldrei neitt gott og mun aldrei gera neitt gott.
Ég vona að kirkjan hans fari undir hraun í næsta eldgosi. Vegna þess að þessi maður er að nota trúarbrögð til þess að réttlæta mannvonsku sína og hatur á öllum þeim sem ekki eru fæddir á Íslandi.
Vinna greinilega á hraða snigilsins | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
20.7.2023 | 21:46
Brjálæði nýfrjálshyggjunar
Þetta er ekkert nema brjálæði nýfrjálshyggjunar og það hefur sannast að þetta skilar ekki neinu og er almennt slæmt fyrir almenning á Íslandi.
Salan á Íslandsbanka var ekkert nema lögleysa og spilling undir stjórn Bjarna Benediktsson og hans fjármálaeftirliti.
Sala á Landsbankanum og Íslandspósti yrði ekkert nema hörmung fyrir almenning á Íslandi og á aldrei að gerast.
Það er stjórnlaus spilling í sjálfstæðisflokknum.
Bjarni: Til greina kemur að selja Landsbankann og Íslandspóst | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.3.2023 | 22:01
Mannhatursfrumvarp Jóns Gunnarssonar samþykkt á Alþingi
Það er Alþingi til ævarandi skammar að hafa samþykkt mannhatursfrumvarp Jóns Gunnarssonar, núverandi dómsmálaráðherra, sem hann lagði gegn flóttamönnum og útlendingum. Vegna þess að þessi maður er rasisti og fasisti og elur á útlendingahatri og goðsögnum um flóttamenn. Jón Gunnarsson er maður sem trúir á lygi frá 15 öldinni, lygi sem fann upp og bjó til rasisma og það mannhatur sem plagar mannkynið á 21 öldinni.
Þetta frumvarp, þessi lög eru og verða Alþingi til ævarandi skammar og niðurlægingar. Núna er á Forseta Íslands að stöðva þessi ólögmætu lög og síðan á að boða til nýrra kosninga, þar sem ekki er réttlætanlegt að hafa svona fasisma við völd á Íslandi. Þar sem það sem Jón Gunnarsson er að koma í gegn hérna, í sambandi við rafbyssuvæðingu lögreglunnar á Íslandi er fasismi og ekkert annað og það verður að stöðva með öllum ráðum.
Útlendingafrumvarpið samþykkt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Með nýjustu lagasetningu um málefni útlendinga sem eru flóttamenn sem Jón Gunnarsson, núverandi dómsmálaráðherra kom í gegn á Alþingi Íslands með skömm. Þá er Ísland núna brotlegt við Flóttamannasáttmála Sameinuðu Þjóðanna og hefur verið það talsvert lengi. Það sem er hérna á ferðinni eru svindlarar og fólk sem stendur hugsanlega í mansali og er að nýta sér neyð fólks til þess að hafa af þeim peninga og jafnvel neyða í vinnu. Þetta er ekkert sem skiptir Jón Gunnarsson máli, enda eru svona mannréttindabrot ekki eitthvað sem hægri-öfgamenn eins og hann hefur áhyggjur af.
Jón Gunnarsson, dómsmálaráðherra hefur meiri áhyggjur af því að setja öfgafull lög til þess að viðhalda þeirri goðsögn að Ísland sé best í heimi. Sem er auðvitað hauga lygi, enda er þetta það sem allir þjóðernissinnar of öfgamenn segja. Breskir þjóðernissinnar segja að Bretland sé besta land í heimi og íslenskir þjóðernissinar segja að Ísland sé best í heimi. Báðir ljúga og hafa rangt fyrir sér.
Flóttamenn eru fólk sem er að flýja ofsóknir af hendi annara öfgamanna sem hafa komist til valda og eru að nota ofbeldi til þess að kúga fólk og myrða. Þessi staðreynd skiptir Jón Gunnarsson, dómsmálaráðherra ekki neinu máli frekar en aðra stjórnmálaflokka sem eru í ríkisstjórn Íslands.
Þetta fólk ætti og þarf að skammast sín og vera komið frá völdum á Íslandi að eilífu.
Það er erfitt að eiga við svona svindlara sem ljúga að fólki. Það er þó mögulega hægt að gera slíkt en Jón Gunnarsson, dómsmálaráðherra hefur ekki áhuga á slíku.
Dæmi um misnotkun á flóttamannasamningi SÞ | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
12.2.2023 | 17:19
Hinn ljúgandi þingmaður og óheiðarlega ferðaskrifstofan í Venúsela
Það kemur mér lítið á óvart að Birgir Þórarinsson, þingmaður sjálfstæðisflokksins grípi þessa gæs á meðan hann hefur hana. Enda eru raðlygnir þjóðernissinar ekki þekkir fyrir annað en að grípa hatrið þegar þeir geta og dæla því út eins og öðrum skít sem frá þeim kemur. Ferðaskrifstofan í Venúsela er auðvitað að ljúga að fólki til þess að reyna sjálf að græða á stöðu mála þar í landi, þetta er ekki eitthvað sem ætti að koma á óvart. Þar sem efnahagskreppur koma með tvennt, svindlara og þjóðernissinna.
Birgir Þórarinsson er einnig lygari og þjóðernissinni af fasískri gerðinni. Sérstaklega þar hann fullyrðir að fólkið sé að misnota íslenskt velferðarkerfi. Það er ekkert slíkt í gangi og að koma til Íslands sem flóttamaður er löglegt og hefur alltaf verið löglegt. Jafnvel á fölsuðum skilríkjum samkvæmt sáttmálum Sameinuðu Þjóðanna sem Ísland er aðili að og þarf að fara eftir. Íslenska velferðarkerfið er áunnið velferðarkerfi, það þýðir að fólk sem flytur til Íslands vinnur sér inn réttindi hægt og rólega með tímanum. Alveg sama hvað það er. Þetta gerist oftast í kringum vinnu eða með öðrum hætti í gegnum skattgreiðslur einstaklinga (ef fólk starfar sjálfstætt).
Hinsvegar skal varast raðlygna þingmenn eins og Birgir Þórarinsson sem eru þekktir fyrir fasisma og útlendingahatur sem verður skömm og svartur blettur á sögu Íslands í margar aldir eftir að þessu tímabili í sögunni líkur. Skömm að svona fólki og öllum þeim sem styðja svona málstað.
Augljóst að það er eitthvað óeðlilegt í gangi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.1.2023 | 01:19
Breska ríkisstjórnin vanhæf upp í rjáfur
Ríkisstjórn Bretlands, sem er ekkert nema öfga-hægri menn er vanhæf upp í rjáfur og er ekki fær um neitt. Brexit hefur einnig gert það að verkum að þessi slæma staða er kominn upp og mun eingöngu versna á næstu mánuðum.
Útganga Bretlands úr Evrópusambandinu voru stærstu mistök Bretlands á 21 öldinni, það sem af er allavegana. Núverandi forsætisráðherra Bretlands er vanhæfur ríki öfga-hægri maður sem er ekki fær um að gegna þessu embætti, þó svo að hann sé ívið hæfari en manneskjan sem var á undan honum, en þar eru kröfunar mjög litlar.
Ástandið í Bretlandi mun ekki lagast fyrr en íhaldsstjórnin er farin frá og Bretland er aftur gengið í Evrópusambandið. Það mun þó taka Bretland meira en tíu ár að ganga aftur í Evrópusambandið. Þó er von að núverandi ríkisstjórn Bretlands tapi kosningum þann 24. Janúar 2025, ef ekki verður kosið fyrr.
Verkföll harðna á Bretlandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
31.12.2022 | 15:14
Dreifing haturs er ekki lögmæt umræða
Það eina sem Sigmundur Davíð hefur verið að gera þann tíma sem hann hefur verið í stjórnmálum er að dreifa hatri og áróðri. Þetta var slæmt þegar hann var í framsóknarflokknum en varð verra þegar hann stofanði sinn eigin stjórnmálaflokk í frekjukasti þegar hann tapaði formannsætinu í framsóknarflokknum.
Útlendingahatur og annar fasismi er stór hluti af málflutningi Sigmundar Davíðs og það eru ekki stjórnmál eða umræða. Þetta er bara hatur og verið að hvetja til ofbeldsins gegn fátæku fólki sem kemur til Íslands í leit að vernd og skjóli.
Dreifing haturs er ekki málfrelsi og hefur aldrei verið það.
Sigmundur Davíð ætti að þekkja pólitíska sýndarmennsku. Hann er á toppnum þar í þeirri sýndarmennsku og öðrum sýndarmennskum sem finnast. Eins og aðrir menn sem eru andlega fátækir og þurfa að nota ofbeldi til þess að koma sér fram og halda völdum.
Vegið að málfrelsinu og fólk stimplað og útilokað | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
30.10.2022 | 19:57
Ekkert verðmætt tapast við það að Bjarni hætti
Það tapast ekkert af neinu verðmætt við það að Bjarni hætti í stjórnmálum á Íslandi. Reyndar er möguleiki á því að staðan á Íslandi fari að lagast við það að Bjarni hætti í stjórnmálum.
Þetta verður samt aldrei gott fyrr en allur sjálfstæðisflokkurinn auk framsóknarflokksins hverfi af Alþingi íslendinga fyrir fullt og allt. Íslendingar hafa ekkert með þessa tvo öfga stjórnmálaflokka eða aðra öfgastjórnmálaflokka sem eyðileggja allt saman sem þeir koma nálægt og byggja allan sinn málflutning á hræðslu og öfgum.
Bjarni hættur nái Guðlaugur kjöri | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |